Þessi geisladiskur er þinn lykill að keppninni.
25 undirspil af nýjum og frábærum lögum á kr. 2.900.-
Skráðu þig og taktu þátt í skemmtilegasta leik sumarsins!
Diskurinn fæst á útsölustöðum N1 um land allt.
19.08.2010
Áheyrnarprufunum er nú lokið fyrir Röddina 2010, en prufurnar fóru fram víðsvegar um land í allt sumar. Frábær þátttaka var í sumar og tóku á milli 800-900 keppendur þátt allstaðar af að landinu.
Margir efnilegir söngvarar sem voru að stíga sín fyrstu skref á sviði komu þar fram og stóðu sig einstaklega vel og ljóst að Ísland þarf engu að kvíða í nánustu framtíð hvað varðar fjölda efnilegra söngvara!
Miðvikudaginn 11.ágúst fóru fram undanúrslit, en þar tóku þeir 30 keppendur þátt sem sigrað höfðu í áheyrnarprufunum. Tíu af þeim hafa nú verið valdir til að taka þátt í lokakeppni Raddarinnar 2010 sem fer fram í október og verður sýnd á Stöð 2.
Byrjað verður að sýna þættina um undankeppni og undanúrslit Raddarinnar í september/október á Stöð 2.
02.08.2010
Auka áheyrnaprufur verða haldnar á Hótel Loftleiðum miðvikudaginn 4.ágúst og hefjast kl. 15.00 og standa fram á kvöld. Skráðir þátttakendur fá sendan póst frá skipuleggjendum með mætingartíma, mikilvægt er að koma á þeim tíma sem úthlutað er og fylgjast vel með tölvupósti, en allir munu fá póst í síðasta lagi að kvöldi 3.ágúst.
02.08.2010
Um 80 keppendur tóku þátt í áheyrnarprufum sem fram fóru á Akureyri um Verslunarmannahelgina, en 15 af þeim voru valdir til að keppa sín á milli í söngkeppni á Glerártorgi sunnudaginn 1.ágúst. Sigurvegararnir voru þau Gyða Jóhannesdóttir, Helmuth Þór Ólafsson, Marín Eiríksdóttir og Hákon Guðni Hjartarson. Röddin óskar þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.
25.07.2010
Áheyrn hefst kl. 9.00 að morgni laugardagsins 31. júlí í Brekkuskóla Laugargötu og stendur fram eftir degi. Undanúrslit fara svo fram kl. 14.00 sunnudaginn 1. ágúst í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi. Fjórir keppendur komast áfram frá norðurlandi í undankeppnina í Reykjavík, sem haldin verður 11.ágúst. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar frá skipuleggjendum keppninnar á tölvupósti.
24.07.2010
Miðvikudaginn 11.ágúst fara fram undanúrslit Raddarinnar á Hótel Loftleiðum. Þar taka þátt þeir þrjátíu keppendur sem valdir hafa verið úr áheyrnarprufum Raddarinnar víðsvegar að af landinu í sumar. Keppendur í undanúrslitum fá nánari upplýsingar á tölvupósti frá Röddinni strax eftir verslunarmannahelgi.
24.07.2010
Fjórir keppendur voru valdir áfram á Selfossi eftir áheyrnarprufur þar þann 24.júlí. Þeir heita Teitur Gissurarson, Sóley Sævarsdóttir, Fríða Hansen og Irena Víglundsdóttir. Lesa alla fréttina
21.07.2010
Mikil stemning var í Egilsbúð á Neskaupstað laugardaginn 17.júlí þegar þrír keppendur voru validr til að taka þátt í undanúrlitunum sem fram fara í Reykjavík þann 11. ágúst næstkomandi. Lesa alla fréttina
30.06.2010
Frábær þátttaka var í áheyrnarprufunum í Reykjavík og mættu tæplega fjögur hundruð keppendur til leiks á Hótel Loftleiðum. Dómarar keppninnar eru hæstánægðir með hversu margir voru virkilega góðir og höfðu mikið vald á sinni rödd og eru á einu máli með að allir hafi staðið sig einstaklega vel. Það er greinilegt að Ísland þarf engu að kvíða varðandi upprennandi söngstjörnur :-) Lesa alla fréttina
28.06.2010
Vegna fjölda áskorana verður auka áheyrn i Reykjavík 4. ágúst.
26.06.2010
Áheyrnarprufur fóru fram í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík þann 27.júní síðasliðinn, en að lokinni áheyrn fór fram söngkeppni. Að lokum voru valdir tveir keppendur til að taka þátt í lokakeppninni í Reykjavík þann 11.ágúst, en það voru þær Steinunn Þorvaldsdóttir og Harpa Óskarsdóttir sem komust áfram.
19.06.2010
Fjölmargir keppendur spreyttu sig í áheyrnarprufum fyrir Röddina á Hótel Loftleiðum helgina 19-20. júní sl., en á fjórða hundrað þátttakenda tóku þátt.01.06.2010
29.05.2010